140. löggjafarþing — 68. fundur,  12. mars 2012.

afbrigði um dagskrármál.

[17:50]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við greiðum hér atkvæði um afbrigði, hvort þingið samþykki að hleypa þessu máli í gegn með óvenjulegum hætti, taka það og gera það að lögum í kvöld. Við munum ekki gera athugasemdir við það og ekki standa í vegi fyrir að þetta mál verði að lögum. En ég hlýt að gera athugasemdir við það að eina ferðina enn á svo stuttum tíma sé að koma mál sem þingið hefur ekki nokkrar forsendur til að meta. Þetta er mikilvægt mál. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn til að standa betur að þessum málum í framtíðinni, vegna þess að við höfum séð hvert þetta hefur leitt okkur.

Að þessu sögðu endurtek ég það að við munum ekki standa í vegi fyrir því að þetta mál verði að lögum, en lýsum hins vegar ábyrgðinni á þessari lagasetningu á hendur ríkisstjórninni.