140. löggjafarþing — 68. fundur,  12. mars 2012.

gjaldeyrismál.

608. mál
[18:13]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er nú enginn fagnaðarboðskapur sem hv. þingmaður flytur okkur. Við eigum á nokkrum mínútum að ganga frá ansi umfangsmiklu máli. Ég vildi spyrja hv. þingmann um nokkur atriði.

Í fyrsta lagi nefnir hv. þingmaður að það séu líkur á því að við þurfum að lengja enn frekar í höftunum út af því að þau séu orðin svo stór uppsafnaður vandi. Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því að við séum að koma okkur enn dýpra í þann vanda? Við erum í rauninni að taka á afleiðingunum núna en sökum stefnuleysis hæstv. ríkisstjórnar í þessum málum má spyrja hvort við séum ekki að gera okkur erfitt mál enn erfiðara. Við þurfum að afgreiða málið í miklum flýti. Dagur í vikunni er nefndur sem ástæðan fyrir því, þá sé mikil útgreiðsla. Af hverju erum við að þessu núna á elleftu stundu? Ég held að það sé fyrsta spurningin sem kemur upp hjá flestum. Af hverju í ósköpunum erum við að þessu núna þegar menn hljóta að hafa vitað þetta áður?

Í öðru lagi man ég ekki eftir því, virðulegi forseti, að svona hlutir hafi verið framkvæmdir öðruvísi en að hæstv. ráðherra hafi talað fyrir viðkomandi frumvarpi. Ef við erum að leita að einhverjum fordæmum þar sem menn hafa hlaupið til við alvarlegar aðstæður getur maður nefnt haustið 2008. Það er bara ágætt að vita af hverju hæstv. (Forseti hringir.) ráðherra talar ekki fyrir þessu máli.