140. löggjafarþing — 68. fundur,  12. mars 2012.

gjaldeyrismál.

608. mál
[18:20]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingu á lögum um gjaldeyrismál. Hér er verið að herða þau gjaldeyrishöft sem eru í gildi á Íslandi og það er gert á tvennan hátt, annars vegar með því að ef lögin taka gildi verður ekki lengur hægt að flytja afborganir og verðbætur af höfuðstól úr landi í gegnum gjaldeyrismarkað eins og verið hefur og hins vegar er verið að setja höft á greiðslur þrotabúa til kröfuhafa. Allt er þetta gert til að reyna að hafa einhverja stjórn á því gjaldeyrisflæði sem er út úr landinu og það er náttúrlega beint gert vegna þess að gjaldeyrisvarasjóðurinn er ekki af þeirri stærðargráðu að það sé hægt að hleypa gjaldeyri umhugsunarlaust úr landi, getum við sagt.

Það vekur nokkra athygli að þessi þróun er búin að vera í gangi í þó nokkurn tíma. Allt síðasta ár hefur til dæmis staða erlendra aðila í útgáfu bréfa Íbúðalánasjóðs vaxið. Þannig var fyrir réttu ári staðan í kringum 30 milljarðar að nafnvirði en í desember á síðasta ári var hún komin upp í 70 milljarða þannig að hún hafði meira en tvöfaldast þarna innan ársins. Jafnframt hafa borist fréttir af því að þessi þróun hafi haldið áfram, þ.e. staða erlendra aðila hafi aukist enn frekar á þessu ári og að aðilar á fjármálamarkaði hafi ýmist gefið út eða hyggist gefa út skuldabréf með hliðstæðum greiðslum og gildi til dæmis um stutt íbúðaverðbréf.

Ef við skoðum til dæmis þennan flokk íbúðabréfa, HFF 14, sem verða að fullu greidd árið 2014 eiga erlendir aðilar 75% af þeim flokki. Sá flokkur er allt í allt á 42 milljarða og byggir á því að af honum eru greiddir tvisvar á ári í kringum 7 milljarðar og fyrsta greiðslan verður næsta miðvikudag. Þess vegna er allur þessi hraði.

Það sem vekur athygli mína er að þrátt fyrir að þessi þróun hafi verið í þó nokkuð langan tíma og menn gert sér grein fyrir þessu er ekki gripið til þess að þrengja gjaldeyrishöftin fyrr en á allra seinustu metrunum. Það vekur óneitanlega upp spurningar um hvort það sé réttlátt að þrátt fyrir að þetta geti flokkast sem sniðganga frá gjaldeyrishöftum sé skellt í lás rétt áður en útgreiðslur eiga sér stað þegar aðilar leika eftir leikreglum. Það er spurning hvort þessir aðilar eigi þá einhvern skaðabótarétt á ríkið fyrir þessar breytingar en við skulum vona að svo sé ekki.

Ég ætla ekki að setja á langa ræðu út af þessum málum en það frumvarp sem hér er til umræðu er birtingarmynd þess sem gerist þegar sett eru á gjaldeyrishöft. Það þarf stöðugt að herða höftin vegna þess að leikendur á markaði sjá alltaf einhverjar smugur eða leiðir til að komast fram hjá þeim. Við höfum mun meiri reynslu af gjaldeyrishöftum en að vera án þeirra. Síðast þegar við settum á gjaldeyrishöft tók 60 ár að afnema þau. Frjálsræðið varði í tæp 20 ár og nú erum við komin aftur með höftin og farin að leika sama leikinn aftur, þ.e. það er verið að smáherða höftin vegna þess að markaðsaðilar finna glufur.

Síðast voru gjaldeyrishöftin komin út í hluti eins og margskráningu á gengi. Við erum að byrja að sjá vísi að því í uppboðum hjá Seðlabankanum. Þessi margskráning á gengi var að til dæmis þeir sem þurftu að flytja inn báta voru með eitt gengi, heimili annað, útflutningsverslun það þriðja o.s.frv. Þegar mest lét held ég að fimm gengi hafi verið í gangi á íslensku krónunni.

Við erum farin að sjá þetta og nákvæmlega af þessum ástæðum og þeim truflunum sem þetta leiðir til í markaðsstarfseminni höfum við sjálfstæðismenn verið mjög á móti gjaldeyrishöftum og höfum ávallt sagt: Því lengur sem gjaldeyrishöftin eru við lýði, því erfiðara verður að losna við þau. Við sjáum það berlega á þessu, hér sjáum við enn eina birtingarmyndina. Við getum sagt að hér hafi enn verið bætt á vandamálið vegna þess að það hafa komið nýir peningar, nýjar krónur inn í íslenska hagkerfið í gegnum þá hringekju sem stunduð var með HFF-bréf og önnur bréf sem voru með svipaða eiginleika.

Jafnframt hafa heyrst sögur um að þeir sem hafa fengið höfuðstól, verðbætur, vexti og verðbætur á vexti greidda út úr svona bréfum hafi farið með þá aftur inn á aflandsmarkað, skipt þeim yfir í evrur, keypt aftur krónur og keypt aftur slíka verðbréfaflokka sem gerir það að verkum að aflandsmarkaðurinn hefur stækkað og það er náttúrlega afar slæmt.

Þetta er leki sem brýnt er að stoppa. Þó að mér sé óskiljanlegt út af hverju það var ekki gert fyrr vegna þess að þetta vandamál hefur verið þekkt munum við sjálfstæðismenn ekki standa í vegi fyrir þessu máli. Við munum samt ekki veita því brautargengi að því leytinu til að greiða atkvæði með því.

Hér kristallast það vandamál sem þjóðfélög standa frammi fyrir þegar þau taka upp höft. Höftin þurfa stöðugt að verða meiri og meiri til þess að setja undir lekana og velferðartapið af höftunum verður sífellt meira.