gjaldeyrismál.
Virðulegi forseti. Ég held að þetta mál allt kalli á afskaplega margar spurningar. Í þau skipti sem svona aðstæður koma upp, þ.e. að menn grípi til þess að ganga frá máli á mjög stuttum tíma, þá er það út af einhverri neyð. Miðað við þær upplýsingar sem við höfum fengið frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd hefur ekki enn verið upplýst hvaða neyð það er. Nú ætla ég ekki að segja að svo sé ekki, ég bara veit það ekki. Þó erum við búin að funda mjög stíft með þeim aðilum sem hafa lagt til að við færum þessa leið, þ.e. frá Seðlabankanum og efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, og síðan höfum við auðvitað fengið allmarga aðila sem hafa sagt skoðun sína á þessum málum.
Við erum í þeirri stöðu að við munum væntanlega ganga frá þessum lögum í kvöld án þess að vita raunverulega af hverju. Ég vonast til að við fáum einhver svör við því á milli umræðna en það að við verðum hér fram á nótt að ganga frá þessum lögum hlýtur að segja okkur að eitthvað mikið er að. Það er fullkomlega útilokað, virðulegi forseti, að sú staða sem hefur verið nefnd sem ástæðan fyrir þessum lögum hafi komið upp í dag eða í síðustu viku. Við hljótum í kjölfar þessarar lagasetningar að fá að vita hjá hæstv. ríkisstjórn og eftirlitsstofnunum, þá sérstaklega Seðlabankanum, hver raunverulega ástæðan sé fyrir því að við göngum fram með þeim hætti sem kemur nú fram.
Hér hafa verið nefndar tölur um útgreiðslu á fimmtudaginn upp á 7 milljarða kr. Við erum að tala um ákveðna flokka, skuldabréfaflokka, sem kalla á útgreiðslu upp á tvisvar sinnum 7 milljarða kr. á ári. Það er útilokað að það sé ástæðan fyrir þessu — það er algerlega útilokað. Það er líka ljóst að ef það hefði verið ástæðan þá hefði verið vitað í mjög langan tíma að þessi útgreiðsla yrði næstkomandi fimmtudag.
Þetta er óþægileg tilfinning því að í þessu tilviki eins og öllum öðrum höfum við í stjórnarandstöðunni svo sannarlega verið tilbúin að liðka fyrir, greiða atkvæði með afbrigðum og öðru slíku því að við viljum eðli málsins samkvæmt gæta hagsmuna þjóðarinnar og skattgreiðenda, en við höfum ekki enn fengið að vita raunverulegar ástæður þess að við förum þessa leið og af hverju við vinnum fram á nótt til að ganga frá þessum lögum.
Virðulegi forseti. Þetta snýr ekki bara að höftunum, þetta snýr að efnahagspólitíkinni í heild sinni og maður getur ekki annað en fengið þá tilfinningu að hér sé fullkomið stjórnleysi og menn séu á elleftu stundu að redda einhverjum hlutum. Það er enn ein staðfestingin á því að hæstv. ríkisstjórn er algjörlega búin að gefast upp.
Ég vek athygli á því að talað hefur verið um það hvað eftir annað að við séum að fara að aflétta gjaldeyrishöftunum — aflétta þeim! Trúir því einhver eftir daginn í dag að einhver vilji sé á bak við það, hvað þá stefna? Að sjálfsögðu ekki.
Virðulegi forseti. Meiri hlutinn ber ábyrgð á þessum gjörningi, meiri hlutinn heldur lífi í ríkisstjórninni og meiri hlutinn mun klára þessa löggjöf í kvöld. En það er alveg ljóst að í kjölfar þessarar lagasetningar þarf að fara ofan í saumana á því hvað er í raun á ferðinni og skoða þá stöðu sem er uppi, sem ég hef miklar áhyggjur af að sé grafalvarleg og miklu alvarlegri en menn vilja vera láta. Það sem hefur styrkt röksemdir mínar er framganga þeirra fulltrúa sem komu úr ráðuneytinu á fund hv. efnahags- og viðskiptanefndar. Við getum sagt án þess að upplýsa nein leyndarmál að það sé ekki algerlega í samræmi við þann boðskap sem komið hefur frá hæstv. ráðherrum undanfarið, en þeir tala endrum og sinnum um að allt sé í blóma og allt sé að lagast. Starf okkar í dag og í kvöld og fram á nótt og þær umræður sem hafa farið fram í hv. efnahags- og viðskiptanefnd segja okkur að engin innstæða er fyrir þeim orðum.