gjaldeyrismál.
Virðulegi forseti. Ég vil upplýsa hv. þingmann um að tíma hans var ekki lokið þannig að hann hefði alveg getað verið lengur. En ég vek athygli á því sem hv. þingmaður er að segja. Það vita allir að ríkisstjórnarfundir eru ekki greyptir í stein og ég vona ég að núverandi hæstv. ríkisstjórn hafi einhvern tíma haldið ríkisstjórnarfund á öðrum tíma en hefðbundnum.
Hv. þingmaður sagði að hann hefði áhyggjur af því að hlutirnir gætu kvisast út. Hv. stjórnarþingmaður er að segja að hætta hefði verið á því ef ríkisstjórnin hefði fundað um þetta risamál að þessir hlutir gætu kvisast út. (Gripið fram í: Lekur eitthvað fleira en gjaldeyrishöftin?) Það virðist eitthvað fleira vera lekt en gjaldeyrishöftin, virðulegi forseti. En ég hlýt að fara fram á það við hv. þm. Helga Hjörvar að (Forseti hringir.) annaðhvort komi hann með einhverja trúverðuga ástæðu fyrir því af hverju hæstv. ráðherra flytur ekki þetta mál eða hann tali bara skýrt um það sem hann sagði áðan sem var það að ríkisstjórninni sé ekki treystandi fyrir málinu (Forseti hringir.) af því að eitthvað gæti kvisast út.
(Forseti (KLM): Ég verð að biðja ræðumenn um að gæta tímamarka.)