140. löggjafarþing — 69. fundur,  12. mars 2012.

gjaldeyrismál.

608. mál
[23:30]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar upplýsingar svo langt sem þær ná. Hv. þingmaður talar um að þessar erlendu innstæður, þ.e. annars vegar innstæðurnar á erlendu reikningunum og hins vegar innstæðurnar á seðlabankareikningunum sem eru vistaðar erlendis, geti numið einhverjum hundruðum milljarða kr.

Nú held ég að það sé eðlilegt við þessar aðstæður að við fáum að minnsta kosti skýrari upplýsingar um það hversu mörg hundruð milljarða við erum að tala um. Eru það 100 milljarðar, eru þetta 900 milljarðar, eitthvað þar á milli? Ég held að það sé mjög mikilvægt, að minnsta kosti í meðferð málsins í þingnefndinni á milli 2. og 3. umr., að þessi mál séu skýrð nokkuð nánar.

Í greinargerðinni kemur fram að andvirði erlendra eigna búanna sé nú áætlað um 1.700 milljarðar kr. Og ef við erum að tala um allnokkur hundruð milljarða kr. þá erum við að tala um nokkuð stóran hluta af þeim stabba sem hér er um að ræða. Væntanlega erum við bara að tala um núverandi innstæður á erlendum reikningum og núverandi innstæður á seðlabankareikningunum. Ég ítreka það að ef hv. þingmaður hefur þessar tölur nákvæmari á reiðum höndum þá óska ég eftir þeim og að það verði að minnsta kosti upplýst fyrir 3. umr. og við 3. umr. hvað við erum að tala um stórar upphæðir.