140. löggjafarþing — 69. fundur,  12. mars 2012.

gjaldeyrismál.

608. mál
[23:31]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Helgi Hjörvar) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hygg að erlendar innstæður hinna föllnu banka í Seðlabankanum hafi numið 294 milljörðum eða þar um bil. Sundurliðun á því hve stór hluti af erlendum eignum þeirra er lausafé á reikningum í erlendum bönkum hef ég ekki tiltæka en skal leitast við að nálgast fyrir hv. þingmann en auðvitað er um verulega fjármuni að ræða. Þeir eru hins vegar erlendur gjaldeyrir erlendis sem fer til erlendra aðila og þannig ekki hluti af því sem við köllum snjóhengjuna eða aflandskrónurnar eða hvaða nafn sem menn vilja nota fyrir það óþolinmóða fé sem er inni í krónunni og vill þaðan út. Þær innstæður koma þess vegna viðfangsefninu í sjálfu sér ekki við og var aldrei ætlunin að taka undir þetta með neinum hætti.