140. löggjafarþing — 69. fundur,  12. mars 2012.

gjaldeyrismál.

608. mál
[23:42]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er ekki eðlilegt ástand að vera að ganga frá máli korter í 12 á mánudagskvöldi, ég ætla samt ekkert að fara að kvarta yfir ófjölskylduvænum vinnustað eða neitt slíkt. En stóra einstaka málið er þetta að við erum með afskaplega stórt mál sem hefur augljóslega ekki verið vel undirbúið. Öllum er það ljóst sem hafa tekið þátt í þessari umræðu í dag, og sérstaklega í hv. efnahags- og viðskiptanefnd, að hér er um vanreifað mál að ræða og þetta er áfellisdómur yfir efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar.

Við erum á afskaplega hættulegri braut og það sem maður lærir kannski af þessari umræðu er að maður hefur af þessu miklar áhyggjur. En við ætlum hins vegar, á milli umræðna, að reyna að fá betri upplýsingar um þetta mál en munum við þessa atkvæðagreiðslu sitja hjá miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir.