140. löggjafarþing — 71. fundur,  13. mars 2012.

störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Björn Valur Gíslason (Vg):

Forseti. Nú þegar líður að lokum vitnaleiðslna fyrir landsdómi heyrast ekki lengur þær raddir sem voru svo háværar fyrir nokkrum dögum og vikum að hætta ætti við þessi réttarhöld og slá þau af í raun áður en þau hófust. Einu umkvartanirnar sem heyrast nú varðandi landsdóminn eru þær helstu að ekki sé hægt að fylgjast nógu mikið og vel með þeim, það sé ekki bein útsending sjónvarps, ekki bein útsending í útvarpi, ekki hægt að fylgjast með réttarhöldunum á netinu o.s.frv. Kvartað er yfir plássleysi í réttarsalnum sem takmarkar mjög fjölda áhorfenda og áheyrenda sem vilja fá að fylgjast með og fjölmiðlar kvarta yfir aðstöðuleysi sínu til að flytja þjóðinni fréttir af gangi mála og hafa talsvert til síns máls hvað það varðar.

Flestir eru þeirrar skoðunar að nauðsynlegt hafi verið að færa þennan hluta hrunsins inn í réttarsal og fyrir landsdóm, enda hefur nú komið enn betur í ljós að stjórnvöld undir forustu Sjálfstæðisflokksins og þess formanns sem nú situr fyrir landsdómi sýndu af sér fádæma andvaraleysi við stjórn landsins í aðdraganda hrunsins, (Gripið fram í.) ekki aðeins síðustu missirin eða mánuðina fyrir hrun heldur lengra aftur í tímann, [Frammíköll í þingsal.] eins og fram kom síðast í vitnaleiðslum í morgun. (Gripið fram í.)

Enn sem komið er hefur þó enginn stjórnmálamaður boðist til að axla þá ábyrgð sem menn kröfðust að fá, meðal annars í kosningum, (Gripið fram í: Víst.) það hefur enginn viljað axla hana. Hinn ákærði vísar því frá sér, seðlabankastjóri, sem þó keyrði Seðlabankann í þrot, vísar ábyrgðinni frá sér, fulltrúar eftirlitsstofnana vísa ábyrgðinni frá sér. Það ætlar víst enginn sjálfviljugur að axla ábyrgð á því sem hér gerðist og því er eina vonin að landsdómur kveði upp úr með hvar ábyrgðin liggur hjá stjórnmálamönnum.