störf þingsins.
Virðulegi forseti. Lengi skal manninn reyna. Ég skal viðurkenna að ég hélt að ég mundi upplifa það hér að verða sammála hv. þm. Jóni Gunnarssyni sem fór með ágæta ræðu áðan og talaði um afnám gjaldeyrishafta og rót vandans. Ég hélt að hann væri að boða endurskoðun á peningamálastefnu Sjálfstæðisflokksins, en ég þarf greinilega að bíða aðeins lengur eftir því.
Hér hafa menn í dag og í gær gagnrýnt þá lagasetningu sem fram fór í gærkvöldi og snerist um að færa Seðlabankanum tæki til að stöðva áframhaldandi gróðabrask spákaupmanna sem gæti grafið alvarlega undan gengi íslensku krónunnar með alvarlegum afleiðingum fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. Það er hins vegar merkilegt að bæði í þessum sal og víða í samfélaginu eru menn ekki að greina einmitt rót vandans sem er sá að gjaldeyrishöftin í landinu eru auðvitað bein afleiðing af þeim gjaldmiðli sem er ekki í færum til þess að halda sjó á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum í samkeppni við gjaldmiðla milljónahagkerfa á borð við evruna, dollarann og jenið. Þannig er það og þess vegna erum við með þessi séríslensku hjálpartæki eins og verðtryggingu og gjaldeyrishöft. Þetta mun ekki breytast fyrr en við komumst í stöðugra gjaldmiðilsumhverfi þar sem lykilatriðið er að tryggja öflugan bakstuðning seðlabanka sem hefur afl og trúverðugleika til að verja gjaldmiðilinn fyrir tímabundnum sveiflum eða áhlaupum. Merkilegt sem það nú er þá er Samfylkingin eini flokkurinn í þessum sal sem býður upp á raunhæfa leið til að komast inn í stöðugra gjaldmiðilsumhverfi (Gripið fram í: Heyra þetta.) með því að leggja til við þjóðina að við samþykkjum aðild að Evrópusambandinu, leggjum síðan í kjölfar inngöngu áherslu á að komast innan fárra mánaða í ERM II myntsamráðið og tökum í framhaldinu upp evru að uppfylltum Maastricht-skilyrðunum. Þá er verðtryggingin farin, þá eru gjaldeyrishöftin farin, hv. þm. Jón Gunnarsson, (Gripið fram í.) vaxtastig fyrir íbúðalán í landinu orðið mannsæmandi og þrýstingur á verðbólguna allur annar og minni.