140. löggjafarþing — 71. fundur,  13. mars 2012.

lyfjaverð.

[14:45]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Ég sakna þess frumkvæðis sem hæstv. þáverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, byrjaði á, þ.e. að mynda samkomulag eða reyna að ná samkomulagi við Norðurlandaþjóðirnar um að þær tækju upp sameiginlegt lyfjaeftirlit. Á Íslandi eru 3.300 lyf leyfð en í Danmörku eru þau 10.700, þrisvar sinnum fleiri. Þetta mundi örugglega auka samkeppni og stórlækka kostnað við lyf á Íslandi.

Lyfjaeftirlit Íslands gæti líka tekið að sér verkefni í Norðurlandasamstarfi þannig að þetta gæti orðið ódýrara fyrir öll ríkin og ég skora á hæstv. ráðherra að stefna að því.

Almenningur borgar um einn þriðja af lyfjum, það eru 3–4 milljarðar sem þjóðin er að borga í lyf. Það skiptir verulegu máli fyrir hag þjóðarinnar hvernig til tekst að halda lyfjaverði niðri. Það liggur enn þá fyrir hv. velferðarnefnd frumvarp um niðurgreiðslu kostnaðs á lyfjum og hvernig greiðsluþátttöku sjúklinga er háttað. Ég leiddi einu sinni nefnd um þetta atriði sem var nærri því komin að leiðarlokum en þá var meiningin að taka allan heilbrigðiskostnaðinn fyrir. Það að taka bara lyfin mun valda miklum vandræðum því að sumir sjúklingar hafa notið þess að fá lyfin ókeypis en borga rannsóknir og annað slíkt á fullu, en nú borga þeir bæði lyfin og rannsóknirnar. Þetta mun valda miklum vandræðum.

Ég skora á hæstv. ráðherra að taka á honum stóra sínum og ná samkomulagi við Norðurlöndin og auka samkeppni og taka svo greiðsluþátttöku sjúklinga, allt heila kerfið, undir þannig að almenningi sé hlíft við miklum útgjöldum vegna heilbrigðisþjónustu í heild sinni.