140. löggjafarþing — 72. fundur,  13. mars 2012.

þjóðaratkvæðagreiðsla um aðlögunar- og viðræðuferli Íslands og Evrópusambandsins.

39. mál
[18:00]
Horfa

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð að koma til varnar hæstv. utanríkisráðherra því að hann er að vinna að þessu máli af einlægni til að bregðast við þeim kröfum sem Evrópusambandið setur fram og reynir að leysa úr þeim eins hratt og vel og hann getur. (Gripið fram í.) Honum er falið það. Hversu ósammála sem ég er hæstv. utanríkisráðherra Össuri Skarphéðinssyni í þessu máli þá hefur hann sagt að hann vilji vinna að því að við komumst sem hraðast og greiðast í Evrópusambandið og vill leggja sig fram hvað það varðar. Ég er honum fullkomlega ósammála um það.

Hitt finnst mér miklu alvarlegra í sjálfu sér. Það er þegar þeir sem segjast í öðru orðinu vera andvígir því að ganga í Evrópusambandið en eru síðan á fullu að vinna að inngöngu og aðlögun án þess að spyrna við fótum. Það finnst mér í sjálfu sér mjög alvarlegt.