140. löggjafarþing — 74. fundur, 15. mars 2012.
úttekt á neytendavernd á fjármálamarkaði.
12. mál
Virðulegi forseti. Ég hef í sjálfu sér litlu eða engu við þetta að bæta. Við fórum yfir þetta atriði í umfjöllun um málið, (Gripið fram í.) um það er getið á bls. 2 að þessum sjónarmiðum hafi verið komið á framfæri. Við höfum lagt til að útvíkka orðalag tillögunnar nokkuð til þess meðal annars að ná utan um þessa hugsun. Ég lít svo á að við höfum sinnt þessu ágætlega.