140. löggjafarþing — 76. fundur,  21. mars 2012.

störf þingsins.

[15:09]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Fjárhagsleg staða heimila hefur verið mikið til umræðu. Nú horfum við fram á að verið er að hækka stýrivexti og verðbólgan verður langt yfir þeim mörkum sem Seðlabankinn hefur ákveðið jafnvel allt næsta ár, þetta ár.

Ég vil spyrja hv. þm. Helga Hjörvar, formann efnahags- og viðskiptanefndar, hvort hann telji þetta viðunandi og hvort hann telji það ásættanlegt að heimilin séu að tapa á sparifjárinnstæðum, að heimilin séu að greiða hærri verðbætur á verðtryggð lán, hvort því markmiði að halda niðri verðbólgu sé nægilega sinnt, hvort Seðlabankinn standi í því að halda verðbólgunni í skefjum.

Ég hef rætt það áður að þar sem sparifé heimilanna er að mestu leyti óverðtryggt, eitthvað 70–80%, eru sparifjáreigendur að tapa umtalsvert í dag. Vextir eru þar frá 0% upp í 4% og svo kemur fjármagnstekjuskatturinn sem lækkar það niður í 3% þannig að í 6,5% verðbólgu eru sparifjáreigendur að tapa. Og innstæður eru ekki tryggðar, ekki með ríkisábyrgð. Ég vil spyrja hv. þm. Helga Hjörvar, formann efnahags- og viðskiptanefndar, hvort hann samsinni mér í því að það borgi sig ekki að spara á Íslandi í dag.