140. löggjafarþing — 76. fundur,  21. mars 2012.

úttekt á neytendavernd á fjármálamarkaði.

12. mál
[15:43]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég verð að lýsa því yfir að ég get eiginlega ekki greitt atkvæði því að ég skil þetta ekki. Hér kom fram áðan að það hefði verið breytingartillaga við breytingartillögu. Hvar er hún? Hvar er sú breytingartillaga? Það eina sem ég sé hérna er nefndarálit á þskj. 980 og það er það eina sem ég hef. Er það það sem við erum að greiða atkvæði um eða er breytingartillaga við þá breytingartillögu?