140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

fjárfestingar erlendra aðila og auðlindagjald í orkugeiranum.

[13:46]
Horfa

fjármálaráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Virðulegur forseti. Ályktunin frá Evrópusambandinu mun ekki hafa nein áhrif hér, það mun ekkert breytast varðandi eignarhaldið. Hv. þingmaður talaði um auðlindaskatt og vitnaði í veiðileyfagjaldið. Varðandi veiðileyfagjaldið er þar um að ræða 70% gjaldtöku umfram hagnað sem myndast í greininni, eða auðlindarentu sem kölluð er svo, sem kemur til vegna sérleyfa til nýtingar náttúruauðlinda, en ekki er tekið gjald af eðlilegum hagnaði fyrirtækjanna, sá skattur verður bara áfram 20%. Hér er því um klassíska auðlindaskattheimtu eða auðlindagjaldtöku sambærilega þeirri sem við sjáum í raforkunni í Noregi og olíuvinnslu en þar hefur á undanförnum árum myndast mikil auðlindarenta. Ég get svarað hv. þingmanni hvað þetta varðar játandi, þetta er klassísk auðlindaskattheimta eða auðlindagjaldtaka sem hlýst af auðlindarentunni. Þeim sem hefur nýtingarréttinn eða leigir auðlindina er reiknaður eðlilegur hagnaður en síðan deilir hann hagnaðinum af því að nýta ódýra auðlind með eigendum auðlindarinnar.

Ég geri þá ráð fyrir að koma inn á hinn hlutann í seinna svari.