framtíð Garðyrkjuskólans á Reykjum í Ölfusi.
Frú forseti. Það er engum ofsögum sagt að góð menntun í garðyrkjunni er mikilvægt og nauðsynlegt bakland þeirrar miklu starfsemi sem garðyrkjan er. Það kom einnig fram, af því að við ræðum hér mikið um atvinnumál og uppbyggingu á vettvangi orkufreks iðnaðar, að yfir 500 störf tengjast ylrækt undir þaki á Íslandi í dag. Þarna er um að ræða mikla og vaxandi atvinnugrein og það skiptir máli að búa vel að henni.
Ég fagna því að hæstv. ráðherra lýsir því yfir að það sé ekki lausn á vanda skólans að hrófla við þessari einingu frekar en öðrum, en ég tek undir að það er alvarlegt mál að uppsafnaður halli skólans er yfir 700 milljónir. Við þurfum að finna lausn á því og mun hæstv. ráðherra, eins og hún nefndi áðan, mæta á fund allsherjar- og menntamálanefndar og fara yfir það mál á fimmtudaginn.
Því vildi ég einnig spyrja hæstv. ráðherra hvort það kæmi til greina að skoða aukna samvinnu eða samruna við aðra skóla. Eins og við vitum, þó að það sé margt gott við það hvað skólarnir urðu margir á stuttum tíma, (Forseti hringir.) er núna komið að tíma hagræðingar og sameiningar á háskólastigi.