140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[14:39]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Í stuttu andsvari vil ég draga það fram að stjórnarflokkarnir ásamt Hreyfingunni hafa í raun ekki myndað sér efnislega afstöðu til þeirra tillagna sem nú liggja fyrir. Það lýsir sér best í því að einn hæstv. ráðherra, hæstv. innanríkisráðherra Ögmundur Jónasson, hefur nú þegar sagt að hann muni ekki samþykkja tillöguna þar sem ekki er hægt að bera fjárhagsmálefni undir þjóðina. Ágreiningur er strax uppi innan stjórnarliðsins.

Ég var á fundi áðan í Þjóðarbókhlöðu um norsku skýrsluna svokölluðu um EES-samninginn. Þar kemur alveg í ljós sem við vissum, að upphaflega, 1994, var mikill lýðræðishalli og við sögðum þá að það stangaðist ekki á við stjórnarskrá. Síðan þá hefur lýðræðishallinn aukist mjög. Það undirstrika Norðmenn og það eru menn líka að tala um hér heima. Síðan hefur lýðræðishallinn aukist og það eru miklar líkur á því að sá halli fari gegn stjórnarskrá.

Ég spyr hv. þm. Valgerði Bjarnadóttur: Af hverju er þjóðin ekki spurð hvort breyta eigi stjórnarskránni í þá veru?