140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[15:00]
Horfa

Róbert Marshall (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er enginn sem getur tekið þann rétt af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að flytja tillögur um breytingar á stjórnarskránni, tillögur sem byggja þá á þeirri vinnu sem þeir tóku þátt í að færi fram innan stjórnlaganefndarinnar, á þjóðfundinum. Hver einasti þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur getað haldið málinu áfram á grundvelli þeirrar vinnu sem hann lagði til og þeir lögðu til að yrði hafin. Það liggja fyrir ítarlegar skýrslur um stjórnarskrártengd málefni, tillögur ofan á tillögur, sem Sjálfstæðisflokkurinn lagði til að yrði farið af stað með. Af hverju byggir þá ekki Sjálfstæðisflokkurinn á þeirri vinnu og kemur fram með efnislegar tillögur?

Það er rangt sem hv. þm. Bjarni Benediktsson segir hér í ræðustól að ekki hafi farið fram efnisleg umræða í þinginu um þessi mál. Ég las í gegnum sex ágætisræður frá hv. þingmanni í morgun sem hann flutti um málið árið 2010.