ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Við vitum það öll sem störfum hér á þinginu að engin breyting verður gerð á stjórnarskránni á miðju kjörtímabili, það mun gerast á þinginu sem tekur til starfa rétt fyrir kosningar næsta haust, ef af því verður þá yfir höfuð. Þegar kallað er eftir tillögum til breytinga á stjórnarskránni frá Sjálfstæðisflokknum er mjög áberandi að engar tillögur hafa komið fram frá stjórnarmeirihlutanum. Þeir hafa hins vegar úthýst verkefninu alfarið og halda áfram að gera það.
Ég lýsi furðu minni á því að menn skuli ætla að leggja margar spurningar fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu sem þingið hefur ekki tekið afstöðu til og heldur ekki meiri hluti nefndarinnar. Stjórnarmeirihlutinn, meiri hluti nefndarinnar, ríkisstjórnin, enginn hefur afstöðu til þessara spurninga. Það er engin leiðbeining, það hefur engin umræða farið fram í þinginu um það: Er æskilegt að fella ákvæði um þjóðkirkjuna út? Ég tel til dæmis að það sé óæskilegt, ég mun segja það við atkvæðagreiðsluna, en mun meiri hlutinn segja það? Mér finnst sú spurning hvort persónukjör verði aukið í raun og veru þýðingarlaus vegna þess að hún segir ekki neitt. Það er hægt að gera það með margvíslegum hætti eins og ég rakti í máli mínu áðan. (Forseti hringir.) En ætlar meiri hlutinn að mæla með einhverju sérstöku í því? Er einhver niðurstaða, ein einasta tillaga komin fram frá meiri hlutanum? (Forseti hringir.) Það mun ekki skorta tillögur (Forseti hringir.) frá Sjálfstæðisflokknum þegar loksins verður tekin efnisleg umræða um stjórnarskrána.
(Forseti (ÁRJ): Forseti minnir þingmenn á þann ræðutíma sem þeir hafa.)