140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[15:03]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Forseti. Ég hlustaði á ræðu þingmannsins af athygli og heyrði að honum fannst þetta allt þýðingarlaust, flókið og óskiljanlegt.

Ég velti fyrir mér hvort þingmaðurinn hafi einhvern tíma leitað ráða hjá einhverjum eða hvort honum hafi fundist það ef til vill of lítillækkandi og hvort hann hafi skilið svörin.