ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort ég má svara þessari spurningu því að þessi breytingartillaga mín er víst ekki á dagskrá. Ég ætla samt að freista þess án þess að fá bjölluhljóm frá forseta til að geta svarað spurningunni.
Ég hef verið talsmaður þess að hér séu sem flestar ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslur en það er bara í þremur ákvæðum í stjórnarskránni kveðið á um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslur, þ.e. um breytta kirkjuskipun, sem virðist samkvæmt þessum tillögum um það bil að verða bindandi fyrir stjórnvöld, þegar forseti Íslands beinir frumvörpum til þjóðarinnar sem hann er ósáttur við og svo þegar þingið lýsir yfir vantrausti á forseta Íslands.
Ég hef ekki séð að ríkisstjórnin hafi farið að þeim bindandi þjóðaratkvæðagreiðslum sem var svo afgerandi niðurstaða um í Icesave-málinu sem sýnir að stjórnvöld urðu brotleg í því máli. Vegna þess að þetta er ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla, og raunverulega ekkert annað sem stendur til að fara í í sumar varðandi það þingplagg sem hér liggur fyrir, geri ég mér að sjálfsögðu grein fyrir því að breytingartillaga mín er einnig ráðgefandi. Það er líka svo að hér var kallað mjög eftir þjóðarvilja áður en umsóknin að Evrópusambandinu var lögð inn og sú þjóðaratkvæðagreiðsla hefði einnig orðið ráðgefandi þannig að með þessari breytingartillögu er ég einungis að færa fram fyrir þjóðina þann vilja þeirra landsmanna sem vildu að farið yrði í þjóðaratkvæðagreiðslu áður en umsóknin yrði lögð inn. Þegar samningur liggur fyrir þarf að binda í stjórnarskrá að sú þjóðaratkvæðagreiðsla verði bindandi fyrir stjórnvöld, þ.e. um hvort ganga eigi inn eða ekki. Ég treysti því ekki að núverandi ríkisstjórn fari að þjóðarvilja þegar þjóðin hafnar aðild að Evrópusambandinu í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu jafnvel upp á 70% sem segja nei.