ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Ég hjó eftir því í máli hv. þm. Róberts Marshalls að hann liti svo á að sú kosning sem fram ætti að fara samhliða forsetakosningunni væri ígildi einhvers konar skoðanakönnunar þar sem vilji þjóðarinnar kæmi fram.
Nú er ég enginn sérfræðingur um skoðanakannanir og á jafnvel von á því að hv. þingmaður sé mér fremri á því sviði vegna reynslu hans af störfum hjá fjölmiðlum. Þess vegna langar mig, frú forseti, að inna hv. þingmann eftir því, úr því að um er að ræða skoðanakönnun, hvort það hefði ekki mátt fá nokkuð nákvæmlega fram með skoðanakönnun og þeirri aðferðafræði sem þar er byggt á, um stærð úrtaks o.s.frv., þá þætti sem hv. þingmaður leggur nú til að verði gert með þessari kosningu.