ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Það svarar að sjálfsögðu ekki því sem er mikilvægt í þessu tilfelli, að fá alla þjóðina að borðinu og efna til umræðu um málið.
Ég geri mér grein fyrir því að það er mikill áhugi á stjórnarskrártengdum málefnum og mikil umræða hefur verið um þau undanfarin tvö, þrjú ár. Hins vegar mun það að sjálfsögðu hjálpa til með þátttökuna að kosningin fer fram samhliða forsetakosningum í sumar.
Þótt kjósendur hafi gegnum tíðina haft mikinn áhuga á því að ljá hv. þm. Illuga Gunnarssyni stuðning sinn í prófkjörum og kosningum hefur hann samt sem áður gripið tækifærið og komið sér á framfæri með ýmsum hætti, með auglýsingum og þátttöku í spjallþáttum hér og þar. Það er ekki vegna þess að fólk hafi svo lítinn áhuga á að styðja hv. þingmann heldur vegna þess að það er mikilvægt að efna til umræðu, vekja athygli á málefninu og fá fólk til að taka þátt.