140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[16:17]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Ármannssyni fyrir ræðu hans, ég vissi að hún yrði áhugaverð eins og yfirleitt þegar þingmaðurinn kemur hér upp og flytur ræður sínar. Ég vil spyrja þingmanninn nokkurra spurninga.

Nú er það þannig að í Bandaríkjunum er mikil hefð og hefur verið mjög lengi að spurt hefur verið ýmissa spurninga samhliða forseta- og þingkosningum þar.

Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann telji að Íslendingar séu að einhverju leyti síður færir til þess að forðast þann rugling sem kom fram í orðum þingmannsins en Bandaríkjamenn. Það væri áhugavert að heyra rökstuðninginn frá honum hvað það varðaði.

Í öðru lagi vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann mundi styðja breytingartillögu sem hv. þm. Vigdís Hauksdóttir hefur lagt fram um hvort eigi að halda áfram aðildarviðræðum við ESB eða ekki, það fari líka í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningunum.

Í þriðja lagi vil ég spyrja um réttinn, þ.e. hverjir eiga í rauninni að hafa rétt til þess að setja mál í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu, og þá um valkostina, hvort það væri forsetinn, ákveðið hlutfall þjóðarinnar eða minni hluti Alþingis. Hver er afstaða þingmannsins til þessara þriggja valkosta?