ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Hæstv. forseti. Ég treysti fólki ágætlega til þess að taka afstöðu til skýrra óskilyrtra spurninga, skýrra spurninga þar sem ljóst er hvað já-ið þýðir og hvað nei-ið þýðir. Það finnst mér vera vandamálið við þessa framsetningu að verið er að spyrja á vitlausum tímapunkti. Það er verið að segja: Við ætlum að kjósa núna um eitthvað sem við eigum eftir að breyta. Við ætlum ekki að segja hvernig við ætlum að breyta því. Við vitum ekki hvort þær breytingar verða miklar eða litlar, en segðu þína skoðun, endilega. Segðu þína skoðun, kjósandi góður. Segðu þína skoðun. Við ætlum svo að gera það við niðurstöðurnar sem okkur sýnist. (Gripið fram í: … alþingiskosningum.)
Í alþingiskosningum er þó verið að kjósa með bindandi hætti tiltekna einstaklinga til setu í tiltekinn tíma. Auðvitað er ekki vitað hvað dregið verður upp úr hattinum í sambandi við stjórnarmyndun og annað þess háttar. Við vitum það, þar er galli. Ég kann ekki skárri leið. En mér finnst þetta í raun og veru vera hálfgerður blekkingaleikur. Ef hv. þingmaður er þeirrar skoðunar að tillögur stjórnlagaráðs séu góðar tillögur sem eigi erindi í nýja stjórnarskrá Íslands, af hverju kemur þá ekki hv. þm. Eygló Harðardóttir og leggur þær fram sem frumvarp og fær samherja sína í hinum og þessum flokkum til þess að gera það með sér? Ef þau eru sannfærð um það að þetta séu góðar tillögur, ef þau trúa því að þetta séu góðar tillögur sem muni leiða til góðrar stjórnarskrár, af hverju koma þau þá ekki með tillögu um það að þetta verði ný stjórnarskrá? (EyH: Svaraðu spurningunni.)
Varðandi spurninguna, einu spurninguna sem ég á eftir ósvarað, þ.e. um breytingartillögu Vigdísar Hauksdóttur, gæti ég vel hugsað mér spurningar. Ef farið er á annað borð út í það að keyra einhvern spurningavagn í þessum efnum þá get ég hugsað mér ýmsar spurningar sem gætu átt þar heima.
Ég nefndi það í ræðu minni meðal annars í sambandi við forsetaembættið. Ég get alveg tekið undir það að spyrja mætti, ef farið yrði út í einhvern langan spurningavagn, um hver ætti að hafa rétt til þess að krefjast bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég veit ekki með tillöguna um ESB. Ég hef samúð með þeirri tillögu en ég mundi frekar orða það þannig að spyrja ætti í (Forseti hringir.) stjórnarskrármálinu hvort það ætti að vera heimilt að framselja fullveldi.