ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Forseti. Við ræðum hér mál sem er mér mjög kært, á mörgum sviðum. Við ræðum hér um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslur og ég er fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslum um ýmis mál, og við ræðum líka um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Allt þetta gleður mig.
En það þýðir ekki að ég segi bara já og amen. Þetta er mjög stór ákvörðun og við þurfum auðvitað að skoða spurningarnar vel. Það höfum við einmitt verið að gera síðustu daga í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og áður. Það var náttúrlega farið í mjög góða vinnu við að skoða málið og hvað þyrfti að spyrja um.
Þetta er mál nefndarinnar og til stóð að það kæmist á dagskrá í síðustu viku en svo varð ekki. Því gátum við haldið áfram að vinna með það þótt það væri komið á þingskjal. Við höfum fengið til okkar alls konar sérfræðinga og spurt þá spjörunum úr og hlustað á ábendingar þeirra. Ég hugsa að einhverjar af þessum spurningum eigi jafnvel eftir að breytast. Sjálfri þykir mér til dæmis að megi breyta seinni liðnum í fimmtu spurningunni, eftir að hafa hugsað málið mundi ég hreinlega vilja að hann færi út því að á vissan hátt er leiðandi að setja fram tölur því að þá er verið að búa til einhvern ramma. Ég held að betra væri að spyrja bara hvort fólk vildi að þetta ákvæði væri inni eða ekki.
Ég treysti þjóðinni algjörlega til þess að skoða málið. Ég veit að það er mikill áhugi fyrir þessu, það finnur maður alls staðar þar sem maður kemur innan um fólk. Ég held að gott verði að fá þessi svör. Ég held að andstaða sumra stafi af því að þeir óttist svörin sem við kunnum að fá.
Mér þykir liðurinn „tek ekki afstöðu“ sem er valmöguleiki mjög mikilvægur, sérstaklega í seinni hlutanum þar sem við hyggjumst spyrja um mjög ólík atriði. Þetta fer náttúrlega eins og bent hefur verið á yfir breitt svið. Ég held að það sé fullkomlega eðlilegt að einhverjir vilji hreinlega ekki taka afstöðu í sumum af þessum málum, en geti jafnframt haft heitar skoðanir í öðrum. Þess vegna finnst mér sjálfsagt að þessi liður sé inni.
Það hefur verið gagnrýnt að hér sé þingið að framselja vald sitt, þingið sé stjórnarskrárgjafinn og eigi bara að semja þetta sjálft. Mig langar aðeins að velta upp annarri hlið á því máli. Það getur vel verið að fólk sem hefur ekki mikla innsýn í þingstörfin haldi að þingmenn skrifi öll frumvörp, en það er ekki svo. Vissulega er til eitthvað sem við köllum þingmannafrumvörp sem almennir þingmenn skrifa, en þau eru náttúrlega stundum skrifuð af einhverjum öðrum, sérfræðingum eða einhverjum sem hafa verið á þingi áður. En ég held að stjórnarfrumvörp séu í langflestum tilfellum skrifuð af sérfræðingum úti í bæ, fólki úti í bæ eða fólki í ráðuneytunum. Eða halda menn að ráðherrann sitji á skrifstofunni sinni og semji öll stjórnarfrumvörp sjálfur? Þau vinnubrögð að fela 25 manna hópi að útbúa frumvarp eru því mjög venjuleg. Það var kannski ekki venjulegt hvernig sá hópur var valinn, en það að eitthvert fólk úti í bæ semji frumvarp er alvanalegt. Það er bara alvanalegt. Nú viljum við spyrja þjóðina hvað henni finnst um niðurstöðuna og það sem fram hefur komið í þessu máli.
Mér finnst gott að spyrja þjóðina. Mér hefur stundum fundist að þjóðin sé bara alltaf í stöðu barns og það hafi hentað ríkjandi stjórnvöldum á Íslandi. Við erum náttúrlega fyrrverandi nýlenda, við höfðum ekkert um okkar mál að segja. Svo er fólki talin trú um að mál séu svo flókin, lífeyrissjóðakerfið sé svo flókið, fiskveiðistjórnarkerfið sé svo flókið og þetta sé allt svo leiðinlegt. „Verið þið nú ekkert að hugsa um þetta, við sjáum bara um þetta fyrir ykkur.“ Þannig að þjóðin er svolítið í stöðu barns þar sem stjórnvöld segja eins og foreldrarnir: „Krakkar mínir, verið þið bara inni í herbergi, fullorðna fólkið er að tala saman.“
Nú gefst okkur tækifæri til að opna þetta mál og spyrja þjóðina og fá skoðanir hennar á þessum atriðum og frumvarpinu í heild. Þetta má þingið. Þingið má margt. Það getur gert margt. Það getur unnið með ýmsu móti, en þingið ræður. Þingið ræður nefnilega hvernig það vill vinna. Ef þingið vill, eins og meiri hluti þessa þings hefur viljað, fara með málið í þetta ferli og spyrja þjóðina á þessum tímapunkti, 30. júní í sumar, um árangurinn af starfinu eins og hann er núna, má þingið gera það því þingið ræður.