140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[16:50]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég velti fyrir mér einu fyrst og fremst vegna þess að það hefur margoft komið fram hjá hv. þm. Margréti Tryggvadóttur að hún er mjög fylgjandi þeim tillögum að breyttri stjórnarskrá sem koma frá stjórnlagaráði, það hefur ítrekað komið fram. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi ekki hugleitt að bera fram það plagg sem frumvarp til breytinga á stjórnarskrá á þinginu, af hverju verið er að fara þessa hjáleið. Ef við göngum út frá því að það sé rétt, eins og hv. þingmaður gerir, að fara með þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu á þessum tímapunkti spyr ég hv. þingmann: Væri þá ekki eðlilegra að leita álits þjóðarinnar á fleiri álitaefnum en hér er gert vegna þess að nýmælin í tillögum stjórnlagaráðs eru vissulega miklu fleiri en þau sem dregin eru út úr hér í sérstökum spurningum, og sum af þeim eru, hygg ég, (Forseti hringir.) meira ágreiningsefni en atriði sem þarna eru inni.