140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[16:53]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á að segja að mér finnst spurningin ágæt eins og hún er. Mér finnst hún ná tilgangi sínum en ég vil ekki útiloka breytingar á henni.

Mig langar að hvetja þingmanninn til þess að koma með okkur í þessa vinnu, ég veit að hann hefur mikinn áhuga á málinu og hann er bara velkominn til að taka þátt í þessu ferli.