140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[17:36]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Frú forseti. Megininntak þessarar umræðu hlýtur að snúa að þeim spurningum sem er hér lagt til að þjóðin svari í kosningu og þá skiptir miklu máli hvernig þær eru orðaðar.

Frú forseti. Það sem ég heyrði hér áðan kallað úr sal frá einum hv. þingmanni sem situr í þeirri nefnd sem um málið hefur fjallað og lagt það til kemur mér ekki á óvart, að mjög takmörkuð umræða hafi verið um orðalag þessara spurninga. Það kemur mér ekki á óvart þegar maður les textann því að augljóst má vera að það hefði verið hægt að gera mun betur í fyrstu tilraun þótt auðvitað megi gera ráð fyrir því að við umræður eins og þessar komi fram athugasemdir og hugmyndir um bætt orðalag sem síðan leiði til þess að merkingarbær niðurstaða komi út úr kosningunum. Það verður að segjast eins og er — þetta er ekki illa meint — að það veldur vonbrigðum hversu illa mótaðar spurningarnar eru sem lagðar eru fyrir fyrri umræðu þessa máls. Þær hefðu mátt vera mun betur undirbúnar.

Ég vil taka lítið dæmi sem rétt er að vekja athygli á í það minnsta. Hér var hv. ræðumaður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir að ræða um stöðu þjóðkirkjunnar. Spurt er, með leyfi forseta, hvort í nýrri stjórnarskrá Íslands verði:

„ákvæði um þjóðkirkju Íslendinga óbreytt frá því sem nú er?“

Í 62. gr. núgildandi stjórnarskrár, sem ég verð að játa að mér þykir vænna og vænna um eftir því sem dagarnir líða og umræðunni vindur fram, stendur:

„Hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi …“

Það stendur ekki að hún sé þjóðkirkja Íslendinga eins og er látið liggja að í spurningunni. Það hefði verið betra ef örlítið meiri nákvæmni hefði verið viðhöfð. Stundum geta menn séð með því að skoða hin smáu atriði hvernig þeim síðan tekst til með hin stærri.

Síðan vil ég nefna annað. Varðandi þriðju spurningu vil ég nú taka undir með þeim sem hafa bent á að það er eiginlega ekki hægt að leggja það upp við þjóðina í já- og nei-spurningu hvort viðkomandi kjósandi vilji hafa persónukjör „í meira mæli“ en áður hefur verið. Það er ekkert hægt að svara þessu með já eða nei. Hvernig í ósköpunum á það að vera hægt? Hvað ætla menn að lesa út úr slíku svari? Á þetta hefur verið bent hér í umræðunum en ég hef ekki enn heyrt frá hv. þingmönnum stjórnarliðsins nein svör við því hvað lá að baki þessu orðalagi. Síðan tel ég að betur fari að segja: í meiri mæli en nú er — en það er annað mál.

Síðan vil ég víkja að nokkru að fimmtu spurningunni. Þar er spurt um hlutfall kosningarbærra manna sem þarf til þess að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég tek undir þær athugasemdir sem hafa komið fram varðandi prósentutölurnar, þ.e. 10, 15 og 20%. Það er eðlilegt að spurt sé hvers vegna ekki t.d. 25% — eða þeir sem vilja þjóðaratkvæðagreiðslu og vilja bara hafa 5%. Ég tel að þarna verði að finna einhverja betri lausn.

Í tengslum við þetta, ef niðurstaðan út úr breytingum á stjórnarskránni verður að það eigi að auka mjög hlut almennings í ákvörðunartöku sem hingað til hefur verið innan veggja Alþingis og innan vébanda Alþingis, þá hljótum við að spyrja jafnframt hvort ekki sé ástæða til að fækka þingmönnum. Það er spurning sem ég tel að hefði og ætti að vera á meðal þessara spurninga ef menn eru þeirrar skoðunar að skynsamlegt sé að auka til mikilla muna þjóðaratkvæðagreiðslur, þ.e. hvort kjósendur séu ekki þeirrar skoðunar að fækka þingmönnum því að verið sé að færa verkefni frá þinginu.

Frú forseti. Ég vil einna helst einbeita mér að fyrstu spurningunni og nota til þess þann tíma sem ég á eftir, sem snýr að því hvort náttúruauðlindir eigi að vera lýstar þjóðareign. Ég hef áður lýst þeim áhyggjum sem ég hef af orðanotkuninni „þjóðareign“ í stjórnarskrá. Þetta hugtak er mjög óljóst í eignarréttarlegum skilningi. Fjölmargir fræðimenn hafa bent á að það eru ýmsir gallar og meinbugir á notkun þessa hugtaks. Án þess að reifa þá umræðu, en hv. þingmenn geta auðvitað kynnt sér hana, hún er mjög aðgengileg, þá er það niðurstaða mín að miklu skynsamlegra væri fyrir þjóðina, ef sú niðurstaða á að fást á annað borð að fara þá leið að sameiginlegt eignarhald verði á öllum náttúruauðlindum, og miklu hreinlegra, skýrara og affarasælla að tala um opinbert eignarhald, eignarhald hins opinbera.

Frú forseti. Ég leitaðist eftir því að kanna hvernig væri staðið að slíkum málum í stjórnarskrám annarra Evrópuríkja. Eftir því sem ég kemst næst eru tvö Evrópuríki með ákvæði í stjórnarskrám sínum um náttúruauðlindir og þjóðareign á þeim. Það er annars vegar Eistland og hins vegar Slóvenía. Hjá öðrum ríkjum þar sem um þetta eru ákvæði á annað borð er því þannig farið að ýmist er talað um þjóðareign eða ekki, en því fylgir síðan alltaf sú ákvörðun að ríkið sé hinn raunverulegi eigandi, fari með eignina. Á Írlandi eru t.d. ákvæði um að allar náttúruauðlindir séu ríkiseign, það er alveg skýrt.

Ég endurtek: Það mundi spara okkur mikinn rugling ef skýrt væri kveðið á um þetta. Sem dæmi skal ég nefna umræðuna um jarðhitann. Ef menn eru þeirrar skoðunar að það sé munur á ríkiseign eða eignarhaldi hins opinbera annars vegar og hins vegar eignarhaldi þjóðarinnar þá standa menn frammi fyrir ákveðnum spurningum hvað varðar t.d. hitaveituréttindi. Ef kjósandi í mínu kjördæmi hér í Reykjavík stendur frammi fyrir þeirri spurningu hvort náttúruauðlindar verði lýstar þjóðareign þarf sá kjósandi og á kröfu á því að það sé alveg skýrt hvað þetta ákvæði þýðir nákvæmlega, þessi hugsun, og hvort með samþykki sínu á slíku verði hreyft við þeim réttindum sem við Reykvíkingar eigum í heitu vatni. Það er hægt að halda því fram með sterkum rökum að ef um er að ræða hugtakið þjóðareign geti verið mjög viðurhlutamikið að mismuna einstaklingum af sömu þjóð aðgangi að eða afrakstrinum af auðlind sem er í þjóðareign eins og heitu vatni.

Hver væru hin málefnalegu rök fyrir því að staða Íslendings sem býr á Langanesi og þarf að hita hús sitt væri öðruvísi en staða Íslendings sömu þjóðar sem býr í Reykjavík og þarf að hita sitt hús? Hver væru hin málefnalegu rök önnur en þau að þjóðareign væri hið sama og ríkiseign, eign hins opinbera, sveitarfélaga, og vegna búsetu manna byggju menn við mismunandi skilyrði því að eignarhaldið er með þessum hætti?

Augljóst má vera að miklu skynsamlegra sé að fara sömu leið og t.d. Írar hafa gert, að kveða skýrt á um að eignarhaldið geti verið í eigu hins opinbera. En það kann að vera að sumum hv. þingmönnum þyki það orðalag frekar óhentugt í almennri umræðu. Það er auðveldara að tala fyrir þjóðareign en ríkiseign eða eign sveitarfélaga.

Vandinn er reyndar líka sá að það er ekki hlaupið að því, ef menn komast að þeirri niðurstöðu að það sé mismunur á þjóðareign og ríkiseign, að skilgreina hvað nákvæmlega átt er við með þjóð. Menn geta verið sömu þjóðar með mismunandi búsetu. Það þarf ekki að vera mismunurinn á milli Reykjavíkur og Langaness, það getur líka verið mismunurinn á milli Reykjavíkur og Berlínar. Hvaða afstöðu eigum við að taka til réttar þess sem er af íslensku bergi brotinn og býr tímabundið erlendis en vill fá að njóta sem eigandi auðlindar afraksturs af auðlind sem er í hans eigu?

Allt þetta hverfur sem dögg fyrir sólu um leið og menn horfast í augu við stöðu mála og viðurkenna að í raun og veru erum við að tala um ríkiseign.

Ég vil benda, frú forseti, hv. þingmönnum á að í stjórnarskrám Norðurlanda eru engin sambærileg ákvæði við þau sem hér er verið að ræða varðandi eignarhald annaðhvort þjóðar eða hins opinbera á öllum náttúruauðlindum.

Að lokum, frú forseti, það er lítill tími eftir, ég mun reyna að koma að þessu síðar, er spurningin: Hvað er auðlind? Það er mjög (Forseti hringir.) flókið mál svo ekki sé meira sagt.