140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[18:12]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og vinnubrögð ríkisstjórnarinnar hafa verið í þessu máli þá held ég að horfast verði í augu við það að hér eftir verða þessi mál miklu erfiðari. Það er nákvæmlega þannig að ef menn hefðu viljað hefði verið hægt að fara þá leið sem menn hafa kosið að fara allan lýðveldistímann en það er að reyna að búa til víðtækustu sáttina. Það hefði verið hægasti vandinn að leita eftir sjónarmiðum meðal almennings, það hefði vel mátt gera það með ýmsum hætti.

Við sjáum hins vegar hvernig málum er nú komið. Stjórnlagaráðið lagði fram sitt plagg og nú er það eins og munaðarleysingi hér í þinginu. Það stendur enginn upp og segir: Þetta er akkúrat það sem við ætluðum að gera. Nei, það eru allir á harðahlaupum undan því að taka efnislega afstöðu til málsins, m.a. vegna þess sem ég rakti hér áðan.

Hinn 1. október á síðasta ári flutti forseti Íslands mikla ræðu úr þessum ræðustóli og lýsti því að þessar tillögur þýddu að verið væri að margefla forsetaembættið. Þá runnu tvær grímur á ýmsa sem höfðu talið að þetta væri mikið snilldarverk sem væri að koma út úr stjórnlagaráðinu og eftir það var málið í fullkomnu uppnámi. Menn hafa farið mjög illa að ráði sínu varðandi stjórnarskrána og vinnu við endurskoðun hennar á síðustu þremur árum. Við hefðum auðvitað nánast verið búin með þetta mál ef almennileg verkstjórn hefði verið af hálfu forsætisráðherra í þessum efnum, ef staðið hefði verið með eðlilegum hætti að þessu máli.

Nú er komið með þetta mál inn í þingið á síðustu stundu. Svo að maður taki líkingamál úr skemmtanalífinu þá er þetta svona korter fyrir þrjú aðferð (Gripið fram í.) sem er verið að beita á stjórnarskrá Íslands. Og það er nú ekki hægt að lúta öllu lægra, ef ég segi alveg eins og er, að koma þannig fram við grundvallarlög okkar, stjórnarskrá Íslands, að meðhöndla hana með þessum hætti, henda þessu hér inn í einhverju ófullbúnu formi sem allir vita núna að getur ekki gengið. Þannig á með einhverjum herkjum og á handahlaupum að ljúka þessu máli í þessari viku.