140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[20:10]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún hefur verið samkvæm sjálfri sér alveg frá því að hún settist inn á Alþingi og maður fór að taka eftir málflutningi hennar í stjórnarskrármálinu, skulum við kalla það, að því leytinu til að hún hefur lýst mjög eindregið yfir þeirri skoðun sinni að breyta eigi stjórnarskránni.

Jafnframt lýsti þingmaðurinn því yfir í ræðu sinni að hún hefði viljað sjá meiri afstöðu tekna í þessari skoðanakönnun, eða hvað það heitir sem hér er til umræðu, að þjóðin hefði mátt segja meira um þann ramma sem forsetinn starfar eftir þegar hann vísar málum til þjóðaratkvæðagreiðslu. Mér skilst að í drögum þeim sem stjórnlagaráð hefur sett fram sé sérstaklega tekið fram að ekki sé hægt að vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu fjárhagslegum málefnum. Samkvæmt því hefði þjóðin til dæmis ekki fengið kost á að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave 1 samninginn, sem var upp á 470 milljarða kr., hvort bæri að samþykkja hann, þrátt fyrir að forsetans nyti við eða ef nægilegur hluti þingmanna hefði viljað vísa málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvað skoðun hefur hv. þingmaður á því að ekki skuli senda í þjóðaratkvæðagreiðslu málefni sem varða fjárhagslega hagsmuni?