ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin, en þá koma fleiri spurningar: Ef hér á að vera fullt jafnvægi á atkvæðum, er hægt að gera það án þess að hafa landið eitt kjördæmi? Ég sé það ekki, það er að minnsta kosti ekki auðvelt. Ef landið er allt eitt kjördæmi, vex þá ekki vald stjórnmálamanna eða flokksforustu í flokkunum? Þá er bara einn þingmaður efstur yfir allt landið og hann verður þá greinilega mjög mikill leiðtogi í hverjum flokki. Vex þá ekki foringjaræðið sem menn hafa verið að gagnrýna?
Síðan er spurningin um ríki og þjóð: Gerir hv. þingmaður mun á ríki og þjóð?
Að síðustu varðandi auðlindir: Hvað er auðlind? Gæti til dæmis lóðarréttur í Reykjavík verið auðlind sem gerði það að verkum að samningi sem ég gerði við Reykjavíkurborg einhvern tímann, eða sá sem var á undan mér, um 90 ára afnot af lóðinni minni yrði (Forseti hringir.) allt í einu rift?