140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[21:49]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ásmundi Einari Daðasyni fyrir ágætisræðu. Hann gat um að hér væri spurningin um að persónukjör yrði í ríkara mæli og sagði að það væri ekkert persónukjör núna. Það má segja að í kosningalögum felist heimild til útstrikunar og það sé ekki persónukjör eða mjög veikt. Það er bara í kosningalögum en ekki stjórnarskrá.

Mig langar til að benda hv. þingmanni á að þarna er spurt hvort menn vilji að náttúruauðlindir verði lýstar þjóðareign. Það sýnir að þeir sem sömdu þessar spurningar hafa ekki lesið tillögur stjórnlagaráðs, því að þar stendur:

„Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar.“

Þeir sem sömdu þessa tillögu til þingsályktunar hafa ekki lesið þetta því að þá hefðu þeir örugglega bætt því inn. Þannig að öll umræðan í dag um þetta atriði felst í vanþekkingu á efnislegu innihaldi þess frumvarps sem við erum þó að greiða atkvæði um að fari í (Forseti hringir.) þjóðaratkvæðagreiðslu.