140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[22:16]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, þetta er alveg á þeim nótum og ég var að spyrja, vegna þess að landskjörstjórn finnst þessi spurning of flókin og ekki bera með sér þann vilja til svara sem höfundar þessarar þingsályktunartillögu ætluðu að fá niðurstöðu í.

Ég hef kannski verið óskýr í spurningu eitt en spyr þá á ný: Hvað finnst þingmanninum um það að hér sé lagt til að spurt verði í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort Alþingi eigi að leggja fram frumvarp á Alþingi sem innihaldi þessa nýju stjórnarskrá sem lagt er til í tillögu stjórnlagaráðs? Telur þingmaðurinn ekki að við þingmenn, sem vorum kosin hér 63 að tölu í alþingiskosningum 2009, höfum nú þegar heimild frá þjóðinni að leggja fram þau frumvörp sem við viljum (Forseti hringir.) í stað þess að vera að fara með það í þjóðaratkvæðagreiðslu eins og hér er lagt upp með?