140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[22:17]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Já, auðvitað hafa þingmenn samkvæmt lögum rétt til þess að leggja fram þau frumvörp sem þeir kjósa og óþarft í sjálfu sér að spyrja að því í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort það sé hægt. En það sem ég sagði í fyrra andsvari mínu tekur eiginlega út þennan texta allan, að þetta getur einfaldlega ekki verið svarmöguleiki í þjóðaratkvæðagreiðslu, þessi texti sem hér er. Hann er of flókinn og hann segir í rauninni — þú ert í rauninni að svara einhverju sem þú veist ekkert hvernig endar. Viltu að lagt verði fram frumvarp sem hugsanlega mun breytast mjög mikið og þú hafir ekki hugmynd um hvernig muni líta út eftir að það hafi verið yfirfarið með tilliti til laga og alþjóðasamninga?

Það er í rauninni ekki hægt að skilyrða spurninguna á þennan hátt. Einfaldast væri því bara að spyrja: Viltu breyta stjórnarskrá lýðveldisins Íslands í grundvallaratriðum, já eða nei?