ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Ég tek undir og þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hans hér áðan. Það er akkúrat það sem þingmaðurinn nefndi: Hvað er ekki í þessari tillögu? — sem er mjög athyglisvert þegar maður skoðar það í sambandi við þær spurningar sem er þó verið að spyrja.
Það sem mig langar að nefna við hv. þingmann er að í tillögum stjórnlagaráðs er talað um frelsi til menningar og mennta, það er talað um fundafrelsi sem er allt í góðu, það er talað um dýravernd og það er talað um jafnræði. Ég velti því fyrir mér kaflanum um jafnræði í 6. gr. þar sem talað er um mannréttindi án mismununar. Það er jafnræðisgreinin, en þar er hvergi talað um jafnræði eða jafnrétti til búsetu, að við höfum sömu tækifæri hvar sem við búum á landinu. Það er ekki gerð tilraun til þess að spyrja um skoðun á slíku í þeim spurningum sem hér eru settar fram. Þvert á móti eru hér tvær spurningar sem að mínu viti eru settar fram til þess að fá einhvers konar mælingu á það eða meiri hluta á bak við það að skerða enn frekar hlut landsbyggðarinnar í þingmannahópnum á Alþingi.
Það kann vel að vera að einhver fari upp og segi að nú séu landsbyggðarþingmenn bara að hugsa um sjálfa sig og það getur vel verið að eitthvert okkar sé að því, en á bak við okkur er að sjálfsögðu fólk sem er að berjast úti í samfélaginu fyrir því að hafa einhvern rétt til búsetu úti á landi. Það virðist vera sem hvorki þeir er skrifuðu tillögur stjórnlagaráðs né þeir sem spyrja þessara spurninga hafi gefið þessu svo mikinn gaum. Í það minnsta finn ég þess ekki stað í þeirri miklu (Forseti hringir.) ritsmíð sem lögð er til grundvallar þessum spurningum.