140. löggjafarþing — 77. fundur,  27. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[23:53]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta eru allt áhugaverðar ábendingar sem hv. þingmaður er með. Hann vék aðeins að þeim spurningum sem eru í þessum spurningavagni meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þar sem vikið er sérstaklega að kosningafyrirkomulaginu. Ég hef mjög eindregnar skoðanir á því máli og tel raunar að sú umræða sem hefur farið fram um kosningafyrirkomulagið og kjördæmaskipanina hafi verið mjög barnaleg og hafi ekki endurspeglað þá umræðu sem fer fram um þessa hluti vítt og breitt um heiminn, sérstaklega í Evrópu. Menn hafa einblínt á það sem lýtur þarna að einni spurningunni, um vægi atkvæða, en úti um allan heim er þetta bara ein margra spurninga sem spurt er þegar menn velta fyrir sér kjördæmaskipan og kosningafyrirkomulagi.

Fyrir fáeinum árum var í Bretlandi sett þingnefnd allra flokka þar sem var farið yfir þessi mál. Þó að menn væru ekki alveg sammála þar um kosningafyrirkomulag og kjördæmaskipan þá voru þeir nokkuð sammála um fáein atriði sem þyrfti að leggja til grundvallar þegar þessi mál væru rædd til hlítar. Í fyrsta lagi þyrfti þingið hverju sinni að endurspegla þjóðarviljann. Það yrðu menn að gera með einhverri tiltekinni dreifingu atkvæða milli kjördæmanna sem endurspeglaði þá kosningarrétt manna í kjördæmunum. Í öðru lagi var lögð á það mikil áhersla að kosningafyrirkomulagið tryggði eða stuðlaði að því að hægt væri að mynda starfhæfar meirihlutastjórnir vegna þess að það var talið mjög mikilvægt. Í þriðja lagi var líka mikil áhersla lögð á að kosningafyrirkomulagið tryggði milliliðalaust samstarf og samband þingmanna og kjósenda.

Ég held að þegar við skoðum þessar þrjár skilgreiningar sé alveg ljóst mál að núverandi kosningafyrirkomulag hjá okkur tryggir þetta ekki og mundi klárlega ekki gera það ef landið væri orðið eitt kjördæmi. Þá væri til dæmis þessi skilgreining um milliliðalaust samstarf þingmanns og kjósenda ekki fyrir hendi (Forseti hringir.) og augljóslega útilokað með persónubundnu kjöri að mynda hér meirihlutastjórn.