140. löggjafarþing — 77. fundur,  28. mars 2012.

ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

636. mál
[00:30]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er varla að maður þori að vitna í eitthvað sem gestir hafa sagt á fundum nefndarinnar. Það verður þó að geta þess, til að allrar sanngirni sé gætt, að þeir gestir sem komið hafa fyrir nefndina út af þessari tillögu, í þessari forathugun nefndarinnar ef við getum kallað það svo, hafa náttúrlega ekki talað einni röddu. Þeir hafa nálgast málin frá mismunandi sjónarhóli, sumir hafa haft efasemdir um einhver tiltekin afmörkuð atriði, aðrir hafa verið miklu gagnrýnni. Maður gæti svo sem velt fyrir sér út frá því hverjir gætu hafa komið að því að ráðleggja meiri hlutanum við samningu spurninganna, ég ætla ekki að gera það, það verður bara að koma í ljós. En það er auðvitað dálítið sérkennilegt ef einhverjir af gestunum hafa komið að þessu verki á fyrra stigi að það skyldi ekki koma fram þegar þeir komu sem gestir fyrir nefndina.