fundarstjórn.
Frú forseti. Það er nauðsynlegt, eins og hv. þm. Magnús Orri Schram sagði, að gera grein fyrir því hvað hér hefur gerst. Þegar umræðu lauk hér gerðist það að þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins óskaði eftir atkvæðagreiðslu um það hvort málið mætti ganga til nefndar. Það væri í sjálfu sér í lagi ef þessi sami hv. þingmaður hefði ekki hins vegar komið í veg fyrir að þingmenn væru kallaðir til atkvæðagreiðslu öðruvísi en með því að hringja bjöllu. Þingmaðurinn kallaði ekki eftir því að þingmenn í Sjálfstæðisflokknum væru kallaðir í hús. Þingmenn Framsóknarflokksins læddust úr húsi meðan forseti gaf þinghlé til þess að hægt væri að kalla þingmenn í hús til atkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Þetta er með ólíkindum (Forseti hringir.) og ég fullyrði að þetta sé fordæmalaust með öllu. Ef menn hefðu ekki brugðið á það ráð að læðast héðan út hefðu verið 32 í húsi, það er bara þannig. (Forseti hringir.) Þannig reyna menn að koma í veg fyrir lýðræðislega niðurstöðu á Alþingi Íslendinga og það er dapurlegt.