störf þingsins.
Virðulegur forseti. Því miður tókst ekki þverpólitísk samstaða í efnahags- og viðskiptanefnd um að draga úr vægi verðtryggingar vegna þess að sumir þingmenn, eins og hv. þm. Lilja Mósesdóttir, vildu setja skilyrði um að önnur mál yrðu leyst um leið. Það var stærra viðfangsefni en við varð ráðið. Hins vegar voru aðrir sem ekki voru tilbúnir að banna verðtryggingu neytendalána á einhverjum tímapunkti í ferlinu. Það breytir ekki því að það er yfirlýst stefna stjórnarflokkanna að draga úr vægi verðtryggingar á kjörtímabilinu og að sjálfsögðu munu stjórnarflokkarnir eftir sem áður vinna að því að ná þar enn fleiri áföngum.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir að draga athyglina að stöðu fólksins með verðtryggðu lánin. Ég tel að þingmenn eigi að hugsa vel um þá stöðu því að hingað til hefur það verið talin ábyrg afstaða að hafna því að venjulegt fólk sem fór skynsamlega fram í hóflegri skuldsetningu til heimiliskaupa og stóð ekki í öðrum fjárfestingum eigi að fá einhverja leiðréttingu sinna mála. Ég tel að það sé alls ekki ábyrg afstaða í fjármálalegu tilliti. Ég tel að það séu skilaboð um að það borgi sig ekki að sýna ráðdeildarsemi, það borgi sig ekki að sýna hófsemi, það borgi sig ekki að takmarka sig við að leita til opinberra lánasjóða eftir venjulegum, viðurkenndum úrræðum. Ef við tækjum ekki á vanda þess fólks sem með verðtryggðum lánum keypti hér fasteign á uppsprengdu verði rétt fyrir hrun værum við að senda þau skilaboð til framtíðarinnar að aðeins þeir sem lengst ganga í skuldsetningu og tefla á tæpasta vað muni fá úrræði þegar illa fer næst. Staðreyndin er sú að í efnahagslífinu koma með reglulegu millibili efnahagsáföll eins og þetta og það er mikilvægt að við sendum skýr skilaboð um að því fólki sem hefur fengið á sig gríðarlegar hækkanir (Forseti hringir.) og langt umfram það fólk sem var með gengislán á síðustu árum (Forseti hringir.) verði mætt eins og hægt er.
(Forseti (RR): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða þann ræðutíma sem þeim er úthlutaður.)