140. löggjafarþing — 79. fundur,  28. mars 2012.

frumvörp um stjórn fiskveiða og veiðigjöld.

[15:46]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Forseti ítrekar það sem sagt var hér áður að dagskrá fundarins hefur verið ákveðin, hún hefur verið tilkynnt og henni verður haldið. (Gripið fram í.) [Hlátrasköll í þingsal.] Það er alltaf gott, hæstv. utanríkisráðherra, ef gullkorn falla svona til manna hér.