140. löggjafarþing — 79. fundur,  28. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[20:43]
Horfa

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það er alveg hárrétt að það er búið að takast á um marga þætti þarna. Einmitt hefur ekki hvað síst verið tekist á um annars vegar þá samfélagslegu þætti sem ég hef lagt áherslu á og hins vegar hreina markaðshyggju eins og Samfylkingin hefur talað fyrir. Það er alveg klárt að það hefur verið tekist á um það.

Eins og ég sagði í ræðu minni áðan hefur skilgreindum þáttum í því frumvarpi sem nú liggur fyrir verið breytt frá því sem ég vildi hafa og lögð til markaðshyggjuátt sem ég er ekki sáttur við.

Ég minntist á það í byrjun ræðu minnar að einn aðalágallinn og það sem núverandi fiskveiðistjórnarkerfi hefur einmitt verið gagnrýnt fyrir er það hve berskjaldaðar sjávarbyggðirnar eru skildar eftir gagnvart uppkaupum og tilfærslum á aflaheimildum o.s.frv. Ég er þeirrar skoðunar að það verði að tryggja sjávarbyggðunum ákveðinn grunnrétt til veiða og þá líka vinnslu. Þess vegna lagði ég til eflingu byggðakvótans, að breyta reglum hans þannig að hann væri skjótvirkari og einfaldari í framkvæmd, en að hann væri samt hinn fasti grunnur sem sjávarbyggðirnar hefðu til að treysta á til lengri tíma.

Af því að hv. þingmaður spurði um það verð ég að segja að eins og frumvarpið lítur nú út hvað varðar byggðamálin og þessa gríðarlegu skattlagningu á sjávarbyggðirnar get ég ekki stutt það óbreytt. Það skal vera alveg ljóst, enda hefur öllum verið það ljóst og við erum búin að takast á í ríkisstjórn um þau atriði sem ég hef ekki verið sammála hinum um.