140. löggjafarþing — 79. fundur,  28. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[20:47]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta var afskaplega fróðleg ræða og yfirgripsmikil sagnfræðileg skýring á ríkisstjórnarsamstarfinu sem hefur verið hér við lýði í þrjú ár. (Gripið fram í.) Og mig langar að benda hv. þingmanni á að það er líf eftir samstarf við Samfylkinguna. Það líf er hins vegar snöggtum skárra ef maður er samkvæmur sjálfum sér og ef flokkurinn sem er í því oft og tíðum ógæfusama samstarfi ber gæfu til þess að vera trúr sinni eigin sannfæringu og sínum stefnumálum. Þar má telja upp mikilvæg mál eins og Evrópusambandsmál o.fl.

Ég skildi hv. þingmann (Gripið fram í: Og landsdómur.) þannig að honum hefði verið með einhverjum hætti bolað út úr ríkisstjórninni vegna Evrópumála. Eitt mál sem Evrópa og Evrópusambandslöndin hafa mikinn áhuga á er auðlindir Íslands og þar á meðal fiskurinn í sjónum. Eins og allir vita sem það vilja vita — sumir eru þó enn í afneitun — eiga sér stað í landinu umfangsmiklar aðlögunaraðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar með það að markmiði að koma til móts við þá löggjöf sem Evrópusambandið hefur í gildi í sínum ríkjum.

Telur hv. þingmaður að það frumvarp sem við ræðum hér sé hluti af þeim aðlögunartilburðum, þ.e. er verið að koma fiskveiðistjórnarkerfinu okkar nær þeim framtíðarsjónarmiðum sem Evrópusambandið hefur til hliðsjónar við fiskveiðistjórn sína og þá umræðu sem er í gangi á þeim vettvangi um framtíðina varðandi fiskveiðistjórnarmál?