stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Vegna þess hversu mikla óvissu þetta frumvarp skapar, verði það að lögum, er mjög ólíklegt að menn muni fjárfesta mikið í sjávarútvegi á næstu árum.
Ég talaði áðan um nýliðunina, að menn treystu á að hægt væri að fá fólk til að trúa því að ekki yrði farið jafnilla með nýliða framtíðarinnar og undanfarinna ára. En ég er ekki viss um að sú verði raunin. Ég held með öðrum orðum að það verði mjög erfitt að fá góða nýliða inn í greinina og mjög erfitt að fá þau fyrirtæki sem nú eru starfandi í sjávarútvegi til að fjárfesta mikið. Hvað þýðir það fyrir samfélagið í heild? Það þýðir einfaldlega minni tekjur fyrir ríkissjóð, minni tekjur fyrir samfélagið. Það sem hefur auðvitað vantað fyrst og fremst til að skapa atvinnu og greiða niður skuldir og losna við gjaldeyrishöftin, til að leysa öll þessi vandamál, er fjárfesting. Fjárfestingu hefur vantað umfram allt annað. En með frumvörpum eins og því sem við ræðum hér er enn á ný verið að gera ráðstafanir til að halda aftur af fjárfestingu.