stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Þetta er mjög góð spurning. Síðustu tvö kvöld höfum við horft á sjónvarpsþátt í Ríkissjónvarpinu, Kastljós, þar sem hefur verið fjallað um þessa spurningu. Mér finnst grundvallarforsendan sem þáttastjórnendur í þeim þætti gefa sér og mjög margir í þessari umræðu vera röng.
Þannig er mál með vexti að ef allur sá fiskur sem veiddur er yrði settur á markað mundi verðið hríðlækka. Það er algerlega ljóst að þeir sem eru að kaupa á markaði eru þeir sem sérhæfa sig í mjög dýrum afurðum, fljúga með þær út kannski á kvöldin eða annað slíkt. Ég tel að það sé algerlega á hreinu að fiskverð mundi lækka í landinu ef allur fiskur yrði settur á markað.
Hitt er annað mál eins og staðan er núna að með þessari virðiskeðju, þ.e. útgerð, vinnslu, sölu, er einfaldlega vissum sveigjanleika og vissri hagkvæmni náð með því að geta ráðið hvenær aflinn kemur að landi, hvernig afli er veiddur í það og það skipti o.s.frv., sem leiðir til þess að það sem kemur út úr virðiskeðjunni er verðmætara en ella, sem leiðir til þess að gjaldeyristekjurnar fyrir þjóðina eru hærri en ella, sem leiðir til þess að þjóðin nýtur betur fiskveiðiauðlindarinnar með því fyrirkomulagi.
Ég vil endurtaka enn og aftur að ég tel það mikinn grundvallarmisskilning að ef allur þessi fiskur færi á markað mundi það ekki hafa nein áhrif á fiskverð. Það er af og frá.