stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég vil taka fram að í þeirri bókun sem ég vitnaði í var ekki sagt að það yrði skilyrt að allur fiskurinn færi inn á fiskmarkaðina heldur að markaðsverðið yrði látið ráða þegar kæmi að uppgjöri við sjómenn. Hins vegar hefur verið bent á að útgerðirnar mundu þá hugsanlega setja meiri fisk á markaðina til að lækka verðið og mundu að sjálfsögðu taka virkan þátt á markaðnum. Ég hef sjálf bent á að ekkert komi í veg fyrir að til dæmis þeir sem kaupa núna fisk af íslenskum útgerðum í Bretlandi eða Þýskalandi gætu líka boðið á íslenskum markaði. Þá mundi sá peningur koma til landsins og við mundum líka skapa fleiri störf.
Eins og ég skil þetta er hv. þingmaður sammála því að samkeppni skipti máli en ekki akkúrat í þessu tilviki vegna þess að hagkvæmnin við að hafa þetta allt á einni hendi skipti meira máli. En ef hagkvæmni skiptir svo miklu máli, má þá ekki jafnvel færa rök fyrir því að kannski sé ástæðulaust fyrir okkur að hafa til dæmis þetta þak á hlutdeildinni, eins og kemur fram í þessu frumvarpi og er í núverandi lögum? Er kannski ástæða til að við hvetjum til þess að fyrirtækin sameinist og við verðum kannski bara með eitt til tvö fyrirtæki sem sjái algerlega um þetta frá A til Ö? Út frá mikilvægi hagkvæmninnar mætti jafnvel færa rök fyrir því að það sé náttúrlega óskiljanlegt að þessar 320 þúsund hræður skuli almennt búa á þessu skeri.