stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Í Sovétríkjunum sátu menn gjarnan og skipulögðu atvinnulífið alveg út í hörgul við grænu borðin í skrifstofunum og sögðu: Þarna á að byggja verksmiðju, þarna á að rækta korn o.s.frv., en höfðu ekki hundsvit á hlutunum.
Við á Vesturlöndum notum markaðinn og hugmynd mín gengur einmitt út á markaðinn. Hver einasti Íslendingur, hver einasti íbúi mundi reyna að selja aflahlutdeild sína á markaði og á móti stæðu einhverjir útgerðarmenn, bæði þeir sem eru starfandi í dag og þeir sem ætla að verða útgerðarmenn. Þar mundi rentan myndast. Sá útgerðarmaður sem veiðir ódýrast og selur dýrast getur borgað mest til Jóns og Gunnu sem eiga veiðiréttinn. Þarna mundi markaðurinn ákveða auðlindarentuna. Og það er svo skemmtilegt, frú forseti, að ég gerði ráð fyrir að þetta yrði um 21 kíló og að hvert kíló mundi seljast á 2.500 kr. og það eru einmitt 17 milljarðar miðað við núverandi stöðu útgerðarinnar. Ég reikna með að það líði ekki nema svona þrjú til fjögur ár og þá verði arðsemiskrafan farin að bíta þvílíkt í útgerðinni og samkeppnin orðin svo mikil að þetta gjald mundi hækka upp í sennilega 25–30 milljarða vegna þess að útgerðin yrði arðbærari með því að framsalið yrði algerlega frjálst. Þarna er verið að nota lögmál hagfræðinnar til að ná fram eins miklum arði úr þjóðareigninni og hægt er. Þjóðina mundi aldeilis muna um 17 eða 20 milljarða til heimilisbrúks.