140. löggjafarþing — 79. fundur,  28. mars 2012.

stjórn fiskveiða.

657. mál
[22:36]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum frumvarp til laga um stjórn fiskveiða. Ég man nú þá tíð, og var kannski ekki mikið gaman á ferðinni, þegar mikil umræða var um sjávarútvegsmál og flest sem sneri að stjórnmálum snerist um sjávarútvegsmál. Aðallega voru menn að ræða hversu illa gekk í sjávarútveginum og að útgerðin væri á hausnum. Eins og hér hefur verið rætt, og hv. þm. Pétur H. Blöndal vísaði til, var gripið til gengisfellinga, settir voru upp sjóðir og ýmislegt annað gert til að bjarga sjávarútveginum. Menn tala mikið um þjóðareign núna en þeir voru ekkert að tala um þjóðareign þá, þeir voru ekkert að tala um hvernig skipta ætti arðinum í sjávarútveginum. Menn töluðu aðallega um það hvernig ætti að bjarga sjávarútveginum. Út á það gekk umræðan. Hæstv. ráðherra Katrín Jakobsdóttir er svolítið yngri en ég og ég veit ekki hvort hæstv. ráðherra man eftir þessu. En í það minnsta man ég þetta mjög vel og er auðvelt að fletta þessu upp.

Það sem gerðist hins vegar, og er ágætlega rakið í skjölum og athugasemdum í tengslum við þetta frumvarp, er að þróunin varð sú að við bárum gæfu til að setja upp hagkvæmt kerfi. Það byggðist fyrst og fremst á tvennu. Annars vegar fórum við út í aflamarkskerfi og framsalið. Það gerist einfaldlega þannig að þeir aðilar sem gengur vel í útgerð geta keypt þá út sem vilja fara út, stundum af því að þeim gengur illa og stundum út af einhverju öðru. Menn geta haft ýmsar skoðanir á þessu, þeim getur fundist kerfið óréttlátt og ýmislegt annað, en þetta hefur verið hagkvæmt. Þess vegna getum við talað um framlegðina í sjávarútvegi. Menn segja kannski: Er það ekki bara alveg sjálfsagt? Er það ekki bara þannig alls staðar?

Virðulegi forseti. Ég fletti því upp á netinu og mér sýnist að framlag Evrópusambandsins til sjávarútvegs sé um 200 milljarðar. Við yrðum væntanlega ein af stærstu fiskveiðiþjóðunum þar inni þannig að við erum að tala um gríðarlega fjármuni sem færu í íslenskan sjávarútveg ef við værum í sama fiskveiðistjórnarkerfi og Evrópusambandið. En Evrópusambandið lítur almennt á fiskveiðistjórnarkerfið sem tæki í byggðamálum. Við getum líka borið okkur saman við Noreg en í einfaldri útfærslu veiðir hver íslenskur sjómaður um 300 tonn á meðan sá norski veiðir um 150–200 tonn. Ef ég man rétt er fjárfestingin í norskum sjávarútvegi helmingi meiri en á Íslandi en við veiðum nokkurn veginn það sama. Það er einfaldlega vegna þess að þessar þjóðir hafa ekki haft eins hagkvæmt fiskveiðistjórnarkerfi og við Íslendingar.

Stjórnarliðar koma hér og segja að það sé svo gríðarlega mikill hagnaður af þessu öllu saman að nú geti menn bara sótt í þetta nokkurn veginn endalaust. Hv. þingmaður og hæstv. fyrrverandi ráðherra Jón Bjarnason fór yfir það áðan. Hann sagði: Annars vegar er það VG sem leggur áherslu á byggðaþáttinn og hins vegar Samfylkingin sem leggur áherslu á uppboð og að sækja peninga inn í sjávarútveginn. Flokkarnir hafa að því er virðist lítið slegið af kröfum sínum og hingað eru komin tvö frumvörp sem gera í raun tvennt, að ná fram markmiðum beggja flokkanna á kostnað hagkvæmni kerfisins. Það er ekkert öðruvísi. Enginn getur haldið öðru fram og allir vita að þeir sem véluðu um þetta hafa ekki fundið endalausa uppsprettu auðs sem allir geta sótt í. Þetta er bara tal út í loftið og ég geri athugasemdir við hitt frumvarpið, um veiðigjöldin, því að það upplegg er bara móðgun við heilbrigða skynsemi. Það er algerlega fyrir neðan allar hellur. Menn tala í fullri alvöru, virðulegi forseti, um að gjaldið sé einhver hlutlaus skattur sem hafi ekki áhrif á nokkurn skapaðan hlut, hafi ekki áhrif á landsbyggðina. Þetta er náttúrlega dómadagsdella.

Menn hafa farið yfir það hvað það liggur gríðarlega mikill undirbúningur að öllum þessum skjölum og hvað það er búið að fara ofsalega nákvæmlega yfir þetta allt saman. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra um hvaða áhrif þetta hafi á bankakerfið því að það er algerlega útilokað annað en að menn séu búnir að taka það út, það er útilokað annað en að hæstv. ráðherra komi hér og upplýsi þingheim um hvaða áhrif þessi frumvörp hafi á bankakerfið og þá sérstaklega Landsbankann sem er með 60% af sjávarútveginum. Hér eru lögð fram frumvörp sem munu gera það að verkum að mörg fyrirtæki munu fara á hausinn, sérstaklega þau skuldsettari. Mér sýnist líka að fjölskylduútgerðir eigi ekki möguleika. Það eru helst kannski allra stærstu útgerðirnar sem skulda lítið sem geta lifað þessi ósköp af. Það þýðir að annaðhvort fara fyrirtækin á hausinn eða bankarnir, og þá aðallega Landsbankinn sem er, eigum við ekki að segja í eigu þjóðarinnar, það er sú tíska núna, ríkisbankinn mun þurfa að afskrifa gríðarlega mikið af lánum. Hvað er þetta mikið? Ef einhver heldur, virðulegi forseti, að þetta muni lenda á kröfuhöfum er það bara tóm þvæla. Það er skýrt tekið fram í samningum við Landsbankann, og ég held meira að segja líka við Arion banka og Íslandsbanka en í það minnsta Landsbankann, að ef til koma sérstakar stjórnvaldsaðgerðir sem munu skaða bankann þá eru kröfuhafarnir stikkfrí. Þetta er klárlega slíkt mál, gengið er fram með slíkar breytingar á undirstöðuatvinnuveginum að þær munu hafa gríðarleg áhrif á efnahag félaganna og þar af leiðandi bankans. Það þýðir að öllu óbreyttu að við þurfum að greiða úr ríkissjóði til Landsbankans til að greiða kröfuhöfunum. Það er útilokað annað, eftir allan þennan tíma og jafnvel þótt tíminn hefði ekki verið svo langur, en að menn hafi skoðað þetta og kannað hvaða áhrif þetta muni hafa á bankana.

Ég mun fara fram á það að hv. efnahags- og viðskiptanefnd fundi sérstaklega um þetta mál og að nefndin fái að vita hvaða áhrif þetta muni hafa á bankana. Ég fer fram á það nú þegar og mun senda sérstakt erindi um það þegar þessari ræðu er lokið. Ég veit að hæstv. ráðherra mun koma hingað í andsvar og upplýsa okkur um málið þannig að við getum tekið þennan þátt inn í umræðuna því það er fullkomlega útilokað að ræða þessi mál án þess að ræða hvaða áhrif þessi frumvörp munu hafa á efnahag bankanna og þá sérstaklega ríkisbankanna og hvernig verður komið til móts við það.

Mér þótti áhugavert að heyra um aðdraganda bílslyssins svokallaða en í fyrravor stóðu hér hæstv. ráðherrar og kröfðust þess að við á þingi samþykktum á nokkrum dögum frumvarp sem hæstv. ráðherrar hafa síðan ekki viljað gangast við og kallað bílslys, hæstv. utanríkisráðherra kallaði það bílslys og lét að því liggja að þetta hefði allt verið mál hv. þm. Jóns Bjarnasonar, hæstv. fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, en nú hefur verið upplýst að svo var ekki. Hæstv. forsætisráðherra kom með beinum hætti að því og svo sannarlega þingflokkur Samfylkingarinnar.

Ég veit ekki hvort ég er eini maðurinn hér sem skilur ekki hvernig í ósköpunum markmið þessara laga eiga að nást, en í e-lið 1. gr. frumvarpsins segir, með leyfi forseta, að markmið laganna sé „að sjávarútvegurinn sé arðsamur og búi við hagstætt og stöðugt rekstrarumhverfi“. Það telst ekki stöðugt rekstrarumhverfi þegar við færum svo gríðarlega miklar heimildir til ráðherra. Ég fór yfir frumvarpið og las það spjaldanna á milli og fann 55 heimildarákvæði fyrir hæstv. ráðherra bara í frumvarpinu um stjórn fiskveiða, ekki báðum frumvörpunum, en samt er ég ekki viss um að ég hafi talið allt. Þetta er allt frá heildarafla, nytjastofnum utan aflahlutdeildar, veiðum utan lögsögu, forgangsrétti að aflahlutdeildum, flutningi aflamarks, krókaaflamarksskipum, gjaldi vegna kvótaþings, viðskiptum með aflamark, sérstökum sjóðum ráðherra, strandveiðum, byggðakvóta, línuívilnun, sjóstöng, áframeldi þorsks, tegundafærslu, undirmálum, álagi á afla, skyldu til vinnslu til manneldis, vannýttu aflamarki og ýmsu fleira.

Virðulegi forseti. Ég hef verið þeirrar skoðunar að við höfum fram til þessa gengið of langt í að veita heimildir til ráðherra. Ég hefði ætlað að eftir allan þennan tíma, allan þennan undirbúning, kæmu menn fram með lagafrumvarp þar sem þeir takmörkuðu valdaframsal þingsins til ráðherra. En mér sýnist ráðherra ráða hér öllu. Hann mun ráða því hver lifir og deyr. Ráðherra fær sérstakan sjóð sem hann setur einhverjar reglur um og markmiðið er að reyna að setja sem mest af aflamarki undir hæstv. ráðherra. Við erum að fara þá leið að koma gríðarlega auknum völdum til stjórnmálamanna og aðallega eins stjórnmálamanns, þess sem gegnir embætti ráðherra. Síðan á hæstv. ráðherra að finna einhverjar leiðir til að ná til dæmis þeim markmiðum að þetta megi ekki hafa áhrif á byggðarlög. Hann á bara að gera það með einhverri reglugerð. Þetta er nokkrum sinnum tekið fram í frumvarpinu nema á einum stað, þá á Hagstofan að koma fram með skilgreiningu á byggðasvæði. Hagstofan, virðulegi forseti. Það kom eins og skrattinn úr sauðarleggnum, ég veit ekki af hverju Hagstofan ætti að vinna sérstaklega í byggðamálum. Var ekki einhver stofnun í því? Ég held að hún kosti fullt af peningum og eigi sérstaklega að sinna slíkum verkefnum. Verst að ríkið á ekki lengur Bifreiðaeftirlitið, við gætum sett það í að skilgreina vaxtarsvæði. Ég segi svona, virðulegi forseti, þetta finnst mér mjög skrýtið.

Stóra einstaka málið er þetta: Það er útilokað annað en að vönduð greining liggi fyrir um hvaða áhrif þetta hefur á bankakerfið og þá sérstaklega ríkisbanka. Áður en við ræðum þessi mál meira vil ég að við drögum þetta upp, fáum þetta fram. Breytingar hafa orðið í stjórnkerfinu og mér finnst leiðinlegt að vera að skamma hæstv. ráðherra sem er hér í forföllum hæstv. bankamálaráðherra meðal annars og sjávarútvegsráðherra og ráðherra yfir ýmsu öðru sem ég ætla ekki að tilgreina hér, ég hef stuttan tíma, en það er enginn annar, virðulegi forseti. Það hlýtur hver einasti maður að vera sammála því að útilokað er að ræða svona mál án þess að ræða hvaða áhrif þessi frumvörp hafa á bankana. Kröfuhafarnir láta ekki plata sig. Þeir sömdu þannig við hæstv. ríkisstjórn að ef það á að fara í svona aðgerðir sem hafa áhrif á efnahag banka, sem þær munu augljóslega gera, eru þeir stikkfrí og þá þurfa skattgreiðendur að borga. Við vitum að þetta mun hafa gríðarlega alvarlegar afleiðingar fyrir efnahag félaganna, þar af leiðandi efnahag bankanna og áður en lengra er haldið held ég að það sé afskaplega mikilvægt að hæstv. ráðherra upplýsi núna þingið og þjóðina um þær úttektir sem hafa verið gerðar um áhrif þessara frumvarpa á efnahag bankanna.