stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég minni aftur á þá úttekt sem fylgir með þessu frumvarpi og snýr að áhrifum þess á sjávarútvegsfyrirtækin. Þar er farið yfir ýmislegt sem snýr að áhrifum á rekstur útgerðarfyrirtækja en ég ítreka það sem ég sagði áðan, stóru áhrifin felast í frumvarpi til laga um veiðigjöld sem er ekki til umræðu hér. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við ræðum þau mál sem hv. þingmaður réttilega vekur athygli á og vill taka til umræðu í þeirri umræðu en ekki í andsvörum út af öðru frumvarpi. Ég ítreka að við skulum halda því til haga.
Hv. þingmaður er vonandi búinn að fara yfir greinargerðina þar sem ýmislegt kemur fram um þessi mál en ég ítreka líka það sem ég sagði áðan, það liggur fyrir að enn er auðvitað talsverð óvissa hvað varðar stöðu bankanna, ekki bara út af þessum málum heldur líka ýmsum öðrum.